Á vefsíðunum er birtur allur texti þessa 9 binda verks nema leiðréttingar, sem birtust í sérstökum köflum í 8. og 9. bindi, hafa verið færðar inn í textann á rétta staði. Neðanmálsgreinar í prentaða ritinu hafa verið tengdar við viðkomandi nöfn með sprettiglugga.
Segja hvers vegna bækurnar eru birtar á vef, á hvers kostnað og hvað varð um sjóðinn. Birta gjafabréfið frá Benedikt vegna Menningarsjóðs prófastshjónanna frá Hofi.
Texti prentuðu bókanna var skannaður en ýmsir stafir og merki komu ekki rétt út við þann gjörning. Guðgeir Ingvarsson færði leiðréttingarnar inn í megintextann sem er birtur á vefinn. Hulda Sigurdís Þráinsdóttir fór yfir nafnaskrána og leiðrétti það sem þar mátti betur fara.
Ásgerður Edda Jónsdóttir Langworth setti vefinn upp í samvinnu við stjórn Menningarsjóðsins: Árna Ólason skólameistara ME, Báru Stefánsdóttur héraðsskjalavörð, Sigurjón Bjarnason gjaldkera
Vefurinn er hýstur hjá Menntaskólanum á Egilsstöðum en lager prentuðu bókanna er hjá Héraðsskjalasafni Austfirðinga.